Aðgengisvaktin

Staða opinberra vefja gagnvart lögum nr. 20/2026

Allir vefir ríkis og sveitarfélaga þurfa að uppfylla aðgengiskröfur, birta aðgengisyfirlýsingu og bjóða leið til að tilkynna um hindranir. Hér er staða hvers aðila skráð eftir sömu aðferð fyrir alla. Lesa lög nr. 20/2026 á vef Alþingis.

  • –dagar til 1. janúar 2027, frestur vefja sem opnuðu eftir 2015
  • –dagar til 1. júlí 2027, frestur allra annarra vefja

Aðgengisyfirlýsingar opinberra aðila

Sæki nýjustu birtu niðurstöðurnar.

  • –aðgengisyfirlýsing fannst
  • –óljóst hvort aðgengisyfirlýsing er birt
  • –engin aðgengisyfirlýsing fannst

Sveitarfélög

Ríkisstofnanir og Stjórnarráðið

Aðrir opinberir aðilar

Sæki nýjustu birtu niðurstöðurnar…

Skrá yfir opinbera aðila og vefi þeirra
AðiliVefurAðgengisyfirlýsingÁbendingaleiðSjálfvirk skönnunSkoðað

Hvað er skoðað

  1. Hvort aðgengisyfirlýsing sé birt á vefnum, eins og 6. gr. laganna krefst.
  2. Hvort notendur geti tilkynnt um hindranir eða beðið um óaðgengilegt efni.
  3. Sjálfvirk skönnun á forsíðu og fjórum undirsíðum með axe-core gegn WCAG 2.1 A og AA. Atriði sem falla undir WCAG 2.2 AA eru talin sér, því þau eru umfram lágmarkskröfur laganna, og eru ekki hluti af aðaltölunni.

Hvað niðurstöðurnar þýða

Sjálfvirk skönnun finnur aðeins hluta hugsanlegra hindrana. Fjöldi atriða er vísbending, ekki úrskurður um hvort vefur uppfylli lögin. Það mat er í höndum vöktunaraðila sem ráðherra tilnefnir.

Vefir á Ísland.is eru reknir miðlægt af Stafrænu Íslandi og merktir sérstaklega.

Leiðréttingar og hagsmunir

Aðgengisvaktin er rekin af Overcast ehf., sem selur aðgengisúttektir og úrbætur. Sama aðferð er notuð fyrir alla aðila, hvort sem þeir eru viðskiptavinir Overcast eða ekki.

Opinberir aðilar geta óskað eftir leiðréttingu eða endurskoðun hvenær sem er. Sendið leiðréttingar á [email protected].

Erindi sem berast á [email protected] eru skráð ásamt nafni og netfangi sendanda svo hægt sé að afgreiða þau. Skráin er aðeins notuð innanhúss, birtist ekki á vefnum og færslum í henni er ekki eytt.